Peter Pan
Færibandasíður
Gamla Síðan
27.04.2005 21:07:12 / petur11

Jæja gott fólk

Ef þið viljið fylgjast með nýju fjölskyldunni í júní þá var kellan að opna síðu á barnalandi. Núna er það reyndar bara undir titlinum ófætt Pétursbarn það sem krílið er ekki enn komið í heiminn en seinna verða myndir og fullt af dóti þar =) þið getið líka farið bara inná barnaland.is/barn/30920
Veriði sæl!!!

» 105 hafa sagt sína skoðun

15.04.2005 12:32:17 / petur11

Jæjja

Jæja gott fólk þá held ég að ég fari að sluta þessari síðu, það er allt steindautt og tímaeyðsla að vera pikka hingað inn!!!

» 98 hafa sagt sína skoðun

30.03.2005 15:30:33 / petur11

Ohh skólinn aftur

Jæja þá er páskafríið búið því miður og skólinn tekur við á ný... Ég er nú bara búinn að hafa það mjög nice í fríinu engin vinna nema bara síðustu sýningar á Óliver en nú er hann búinn :D helgina fyrir páskafríið fórum við til Vestmannaeyja að keppa í körfu og það gekk sona upp og niður lentum í sjöunda sæti. Ekkert til að monta sig á :)
Svo fór ég nú með konunni í afmæli til Bjarkar á Ali og það var nú stuð, datt pínu í það en ekkert meir um það að segja. Svo er búið að vera geggjað veður hér á Dalvíkinni eins og flestir vita og var magnað að fræsa í sólinni og öllum þessum snjó hehe :D það er nú takmarkað eftir af honum ætli sumarið sé ekki bara að fara að skella á ;)
En ég tók könnunina set nýja inn þegar ég nenni hehe sem sagt aldrei :haha: nee djók ég reyni að vera duglegur. en ég held þetta sé nú nóg í bili.
Sæl að sinni :D

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.03.2005 22:16:04 / petur11

Ný skoðunarkönnun

Jæja gott fólk ný könnun komin af stað endilega takið þátt. Mjög sáttur með útkomuna úr síðustu könnun :lol:

Verið sæl að sinni....

» 83 hafa sagt sína skoðun

11.03.2005 17:44:30 / petur11

Jæja þá gott fólk

Ég er greinilega ekki búinn að vera að standa mig hér í blogginu en ég reyni að láta heyra í mér annað slagið :D Það er nú ekki margt að frétta af mér nema kallinn á afmæli á sunnudaginn og ég ætla sko að slappa af því það er enginn Oliver svo ég er bara í fríi :D
Konan ætlar að baka handa kallinum, vonum nú að það fari á sem bestan veg hehe nee má ekki segja sona. segjum bara að hún hefur enga háskólagráðu í eldamennsku :lol:
En ég bíð bara eftir gjöfunum gott fólk muna að láta sjá sig :haha: en já ég setti nokkrar myndir inná myndasíðuna þannig það er bara um að gera að skoða þær. líka smá bumbumyndir af Klöru minni en þær eru gamlar þegar hún var komin ekkað um 4-5 mánuði minnir mig. nú er kella komin rétt yfir 6 þannig ég set bara nýjar myndir inn sem fyrst :haha: en nú er ég nú búinn að standa mig vel í þessu bloggi. þarf að fara í Dalvíkurskóla að lýsa árshátíðina þar. veriði sæl :D

» 85 hafa sagt sína skoðun

09.02.2005 08:55:43 / petur11

Allt að gerast!!!

Hver verður 2000. gesturinn???

Sá hinn sami verður að láta vita því stór verðlaun eru í boði:)
En það eru komnar fullt af myndum undir Myndasíða.

» 99 hafa sagt sína skoðun

03.02.2005 19:01:51 / petur11

Kallinn mættur

Góðan daginn.
Það er alveg ótrúlegt hvað þetta helv... veður er ömurlegt, ég meina þegar er vetur þá á að vera bara allt á kafi en ekki þessi hláka og leiðindi. Mar kemst ekki einu sinni á sleða lengur. En allt magnað að frétta af mér það er soltið mikil umferð hingað inn sem ég skil ekki því ég er svo skelfilega latur, en ég er greinilega bara þeim mun meira skemtilegri8)
Ég gerði góða ferð í Sjallann og hef fengið að heyra það undanfarna daga hversu skrautlegur ég var og það hlítur að vera að ég veki svo mikla lukku þegar ég mæti á djammið að það er bara altalað í bænum:D. En það er bara gott mál ég er nú ekki það mikið að láta sjá mig á djamminu. En nú er ég að fara að horfa á Óliver (kemur á óvart) og ég er alveg búinn að fá nóg að því að eyða öllum kvöldum um helgar og stundum öllum dögum í að vera að vinna. En margt er nú lagt á sig fyrir aurinn. Fyrsti alvöru sónarinn var fyrir stuttu og það var sko upplifun vá, ég meina það er ekkert smá ótrúlegt að sjá að maður eigi lítið kríli þarna inní kellu:D. Mikil hreyfing var á því og sýndist mér á látunum í því að það væri fjörkálfur eins og pabbi sinn:D
En nú þarf ég að fara að vinna og vil ég minna á commentin og gestabókina :)

Veriði blessuð....

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.01.2005 11:42:00 / petur11

Muna Gestabókina

Já og gott fólk verið dugleg að skrifa í gestabók, gaman að heyra frá ykkur líka :D


» 95 hafa sagt sína skoðun

30.01.2005 11:40:35 / petur11

Góðan dag gott fólk

Sælt veri fólkið, það hefur verið einhver leti í mér á þessu bloggi virðist vera en þið sem hafið haft áhyggjur þá hef ég það bara ágætt :D fór í þetta fína afmæli á Fiðlaranum með Vidda og so bara Sálin here we come ;) það var bara fínt í sjallanum og fullt af fólki, endaði nú heldur skrautlegur fyrir utan sjallann en við skulum nú ekki hafa orð á því:lol: núna er maður að fara helvíti þunnur í vinnu að horfa á elskulegan Oliver í guð má vita hvaða skipti... Maður hefði nú kannski bara átt að liggja í leti í gær hjá litlu familíunni minni ;) þetta er nú hálf ótrúlegt ennþá hehe :D en verð að dríbba mig skrifa seinna...

» 102 hafa sagt sína skoðun

15.01.2005 17:47:31 / petur11

Mættur aftur....

Góðan daginn gott fólk, þá er mar mættur til að skrifa einhverja vitleysu herna. En helstu fréttirnar þessa dagana af mér eru þær að kallinn er að verða PABBI, já engin lygi þar á ferð:D En 27 júní mun líf mitt og okkar breytast heldur betur þegar litla krílið kemur í heiminn. Ég hlakka rosa mikið til og vona að ég eigi eftir að verða almennilegur faðir;). Mar er bara í vinnunni núna að horfa á Óliver í 100. skipti jei. Á morgun verður vonandi gert eikkað skemtilegt t.d. að fræsa á fjöll. En ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra vildi bara deila með þeim sem nenna að koma herna inn og lesa, stóru fréttunum.

þangað til næst verið bless..........


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.12.2004 18:06:33 / petur11

JÓLAFRÍ!!!

Guð sé lof þá eru pófin búin og ég kominn í jólafrí Þvílí gleði!:lol:

En ég er í vinnunni í Leikhúsinu á Akureyri og ég mun blogga síðar heyrumst 8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.12.2004 14:26:05 / petur11

Próf í gangi

Er í prófum blogga síðar

Fór í banka, ekki banka


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.11.2004 02:35:52 / petur11

Einn duglegur

Ég held að ég hafi bara aldrei skrifað svona fljótt aftur enda er ég ekkert smá duglegur, sumir hafa haldið því fram að ég sé latur en það er bara ekki rétt

En ég vildi segja að ástæðan fyrir að ég var svona,latur er að ég var fyrir sunnan á jarðaför hjá afa mínum sem dó meðan ég var í London, blessuð sé minning hans og hún er nú ekkert smá stór, en ófáir hafa haft einhver kynni af honum án þess kannski að taka eftir honum. En ég ætla nú ekkert að skrifa meira um það vildi bara segja það.

Ég fór aðeins í leikhúsið í kvöl og átti þar góða stund með félaga mínum og spjölluðum um daginn og veginn, gaman .þegar mar spjallar um hitt og þetta en á morgun þá verður gaman við ætlum nebblega að fara að tjékka á snjóalögum og fara á sleðum inná dal djö mér hlakkar svo til.

En höfum það ekki lengra ég þarf að hvíla mig fyrir morgundaginn heyrumst....


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.11.2004 23:04:12 / petur11

Loksins loksins

Þá er mar byrjaður aftur að skrifa eikkað alveg drepleiðinlegt hérna því mér sýnist að það komi enginn hingað hehe nei segi sona. En nú ætla ég að herma eftir einum ágætum manni og bæta smá lífi inná síðuna þegar ég er að skrifa eikkað sniðugt sjáiði uss nú verður allt crazy.

Ég er semsagt að byrja í prófum og næs , ekki alveg að fíla það frekar stressaður fyrir sum prófin en ég hlít að hafa þetta af.

Svo fer mar að vinna í leikhúsinu á akey strax 8.des það verður magnað svo vonandi kemur einhver snjór í þetta pleis hérna svo mar geti farið á sleða kannski ef kibbi er góðurhehe. Uss sáuði slagsmálin í NBA? ég hef bara ekki séð annað eins þvílík skömm, mar skammast sín bara fyrir að vera körfuboltamaður .

En já mar þarf víst að fara að öllum líkindum til njarðvíkur til að spila körfu um helgina ef meiðslin verða betri, spila á móti Ljónunum (gamla njarðvíkurliðið)

En með þessum töluðu orðum og teiknuðu hehe þá bíð ég góða nótt...


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.11.2004 22:39:40 / petur11

London Baby!!

Kallinn búinn að fara til London og rokka það alveg þar. London er geggjuð borg og þetta var í annað sinn sem ég fer þangað og mar fer pottþéttt aftur. Við vorum ekta túristar og fórum útum allt og reyndar þurfti mar að þola það að hanga í búðum á meðan stelpurnar fundu sér einhverja fatarlarfa til að kaupa, og mar náttlega keypti sér aðeins líka. Svo var það Big Ben og Buckingham sem voru geggjað flott og ég hafði mjög gaman af að skoða þetta allt saman. En að vísu bjuggum við í algjörri holu, lentum á einhverjum svikurum sem auglýsa voða flottar stúdíó íbúðir með voða flottar myndir á netinu og svo þegar við komum þá get ég sé guð svarið að þetta var ekki lifandi veru bjóðandi. En við gerðum bara gott úr því fegnum að skipta um íbúð sökum klósettleysis og sváfum öll 4 í einu rúmi sem var reyndar soltið skrítið (nota bene við strákarnir vorum á sitt hvorum endanum):lol:.

Þannig mar er búinn með peninginn sinn og kominn í skólann aftur sem ég er reyndar búinn að fá alveg standandi ræpu að. Það er allt í lagi því mar fer að vinna í leikhúsinu á akey í desember þegar Óliver verður settur upp og mér hlakkar mikið til, það verðu rosalega gaman.

En besta  að fara að læra fyrir próf ég þarf víst að fara að Spreche Deutch á morgun sem er kannski ekki mín sterkasta hlið.8|

Thats all folks....


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2